Stjórnlaus yfirgangur

Ráða verður bót á stjórnlausri för erlendra ferðamanna um eignarlönd.

Á aðalfundi Landssamtaka landeigenda sem haldinn var nýlega í Reykjavík kom fram að ágangur ferðaþjónustu fyrirtækja á eignarlönd hafi valdið verulegum spjöllum og landauðn.

Brýnt er að koma í veg fyrir yfirgang erlendra ferðamanna á landi. Á fundinum var lögð áhersla á að ráða verði bót á stjórnlausri för erlendra ferðamanna um eignarlönd með tilheyrandi landspjöllum og sóðaskap.

Lögð var áhersla á fernt sem samtökin telja mikilvægt að tekið yrði föstum tökum sem allra fyrst: Ágangi erlends ferðafólks á landi; Jarðasöfnun erlendra aðila; sameignarvanda sem skapast þegar bújörð er í eigu margra aðila; og Þjóðlendumálið.

Talsmenn landeigenda hafa títt vakið athygli á sjónarmiðum Landssamtaka landeigenda um stórfelltd uppkaup erlendra aðila á fjölda jarða í byggðarlögum og kallað eftir skjótum aðgerðum stjórnvalda á því vandmáli.

Löggjafinn verður strax að setja skoeður við uppkaupum útlendinga á heilu byggðarlögunum á Íslandi. Uppkaup þessi munu eyða sveitum. Það er óaðskiljanlegur hluti sjálfstæðis ríkis að eignarréttur á landi og á auðlindum hvíli almennt hjá borgurum þess.

Nánar www.landeigendur.is  www.bbl.is