\"Að skattleggja strax við 140.000 krónur um 38,9% er ekkert annað en skattur á fátækt og því er fátæktarskatturinn um 30 þúsund krónur á mánuði í dag. Síðan er skatturinn og skerðingin á lífeyrissjóðsgreiðslunum frá 63% og yfir 100%\"
Þetta skrifar Guðmundur Ingi Kristinsson, formaður BÓTar og öryrki í aðsendri grein í Morgunblaðinu í dag þar sem hann vandar stjórnvöldum ekki kveðjurnar. Á meðan skattar á hátekjufólk séu lækkaðir sé sótt æ dýpra í vasa fátækasta hóps Íslendinga.
Guðmundi býður við þessu óréttlæti: \"Til hvers að borga í lífeyrissjóðssparnað sem er að stórum hluta skattur,\" spyr hann hugsi: \"Er það til þess að útvaldir ráðamenn, ráðherrar, þingmenn og verkalýðsforkólfar hafi góðan lífeyri ásamt öðrum hálaunamönnum?\"
Hann segir skattalækkun á síðasta ári hafa verið fyrir þá sem séu með 700 þúsund krónur á mánuði og meira. Þeir hafi fengið 13 þúsund króna lækkun og fái nú 11 þúsund króna lækkun í viðbót, eða samtals 24 þúsund króna lækkun: \"Þarna er kominn skatturinn á fátæktina og hann fer beint í vasa þeirra ríku og hálaunuðu,\" skrifar Guðmundur Ingi.
\"Að verða að lifa á um 140-180.000 krónum á mánuði og borga húsaleigu, mat, hita, rafmagn er ekki hægt. Það er ekki hægt að tóra á þessari hungurlús. Þetta er ávísun á svelt, bæði líkamlega og andlega,\" skrifar hann áfram: \"10-20.000 þúsund börn lifa við fátækt á meðan ráðherrar kaupa ráðherrabifreiðir fyrir tugi milljóna og eyða hundruðum milljóna í utanlandsferðir, dagpeninga og annan lúxus.\"
Hann segir að sem betur fer eigi málleysingjar sér málsvara í lögum og reglum um dýravernd: \"En má fara illa með eldri borgara og öryrkja á Íslandi,\" spyr Guðmundur Ingi í grein sinni í Morgunblaðinu í dag.