Skúli Mogensen, forstjóri og eigandi WOW flugfélagsins gagnrýnir íslenskt stjórnkerfi harðlega fyrir að vera svifaseint og flókið, en það muni skaða efnahag landsmanna um 100 til 200 milljarða á næstu árum.
Þetta kemur fram í samtali við Skúla í ViðskiptaMogganum í dag, en þar vísar Skúli til þess að stækkun Keflavíkurflugvallar og uppbygging annarra innviða sem eru nauðsynlegir til að mæta auknum straumi ferðamanna til landsins gangi of hægt: \"Það er ótækt,\" segir hann við blaðið \"að þetta sé í höndum margra aðila í stjórnsýslunni og ríkisstjórnin verður að grípa til aðgerða til að koma í veg fyrir frekara tjón.\"
Hann metur það svo að Keflavíkurflugvöllur sé þegar sprungin og frá árunum 2017 eða 2018 þurfi flugrekendur að draga verulega úr vexti sínum vegna þess að flugvöllurinn geti ekki tekið á móti fleiri farþegum. Hann segir stærstu hindrun ferðaþjónustunar á Íslandi ekki vera samkeppni, skort á tækifærum eða fólki, staðsetningu eða getuleysi til að taka við ferðamönnum og dreifa þeim um landið. Stærsta hindrunin sé Keflavíkurflugvöllur og stjórnsýslan á Íslandi: \"Það að við séum enn að vandræðast með áætlanir um fjölgun ferðamanna sem byggjast á einhverjum skýrslum frá McKinsey og Boston Consulting Group er alveg hræðilegt. Við erum að vasast með farþegaspár frá þessum ágætu herramönnum, sem fengu stórfé til að búa til sín gögn, sem urðu úreltar innan tólf mánaða. Það sem þeir áætluðu að yrði fimm ára vöxtur var orðið að veruleika innan árs. Því miður hafa innlendar spár verið lítið betri og enn er það þannig að farþegaspár Samtaka ferðaþjónustunnar og Isavia hafa verið allt of varkárar sem hægir á öllum fjárfestingum. Þetta var skiljanlegt að einhverju leyti fyrir nokkrum árum en er óafsakanlegt í dag.“