Það er ekki annað að sjá á mannskap ríkisstjórnarinnar en að þar séu allir sáttir og samstarfið gangi snurðulaust fyrir sig - og raunar vekur athygli hvað fáar rokur heyrast úr horni Sjálfstæðisflokksins og Vinstri grænna sem eiga að heita öfgarnar í íslenskri pólitík.
Á þessa vegu tala ritstjórarnir Gísli Freyr Valdórsson á Þjóðmálum og Ingimar Karl Helgason hjá tímariti ÖBÍ, en þeir eru sessunautar Sigmundar Ernis í Ritstjórunum í kvöld - og fara þar tveir ólíkir pennar, á öndverðum meiði, sem gerir bara samtalið þó bara gott og málefnlegt; þeir eru raunar sammála í lokin. Umræðuefnið að þessu sinni er ekki bara líðan stjórnarinnar sem margir halda að sé á nokkur kjörtímabil setjandi heldur ástandið á Alþingi, ekki síst í umhverfis- og samgöngunefnd sem Bergþór Ólason tók að stýra að nýju í dag við mjög misjafna hrifningu, en svo er rætt um persónunjósnir, bakslag lýðræðisins og forboðin konubrjóst.
Ritstjórarnir eru nú partur fréttaþáttarins 21 sem hefst eins og nafnið gefur til kynna klukkan 21:00 á Hringbraut í kvöld.