Meirihluti fjárlaganefndar hefur lagt blessun sína yfir að Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi fái 30 milljónir króna til uppbyggingar svæðis undir álver ið Hafursstaði.
Ríkisútvarpið segir frá þessu.
Hefur ríkisstjórnin þar með að engu skort á orku til að keyra álverið en áætlanir gera ráð fyrir rúmum 400 MW við álbæðsluna fullbúna sem aðallega verður í eigu Kínverja verði áform að veruleika.
Á tímum þar sem deilt er um fé til heilsugæslu, aldraðra og öryrkja, segja þingmenn minnihlutans að þetta verði að skoðast sem „áhugaverð forgangsröðun“ eins og einn þeirra orðaði það í samtali við Hringbraut.
Sigmundur Davíð Gunnlaungsson var viðstaddur undirritun viljayfirlýsingu með Kínverjum og Klöppum Developement og styður hann áformin mjög þrátt fyrir orkuskort.
Þórólfur Gíslason kaupfélagsstjóri KS og félagið sjálft eiga jarðir sem kunna að aukast mjög að verðmæti ef nálæg fallvötn verða virkjuð til að knýja álver Kínverjanna áfram.
Þá er losun mengandi gróðurhúsalofttegunda af álverinu ekki í neinu samræmi við fyrirheit stjórnvalda um að minnka útstreymi.