\"Skilaboðin til barnafjölskyldna í fjárlagafrumvarpinu eru einföld: Haldið áfram að flytja burt af landinu. Hækkandi laun valda því að grimmar tekjuskerðingar og tekjuviðmið í barnabóta-, vaxtabóta-, fæðingarorlofs- og húsaleigubótakerfinu skilja fleiri og fleiri fjölskyldur á meðaltekjum eftir án nokkurs stuðnings af hálfu hins opinbera.\"
Þetta er dómur Árna Páls Árnasonar, formanns Samfylkingarinnar yfir nýframlögðu fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar; þar sé byrðum komið af útgerðinni yfir á almenning, þeir sem hafi fært mestar fórnir í hruninu fái ekki ávinninginn af viðsnúningnum í hagkerfinu.
\"Útgreiddar vaxtabætur munu lækka um hvorki meira né minna en 1.500 milljónir. Þessum stuðningskerfum var í upphafi ætlað að jafna stöði þorra fólks eins og tíðkast annars staðar á Norðurlöndunum, en þau eru nú að breytast í láglaunabætur,\" bendir Árni Páll á og nefnir því næst húsnæðismálin: \"Ný framlög til leiguíbúða leysa ekki húsnæðisvandann og það er athyglisvert að þau eru einungis jafnhá og það sem ríkið sparar sér með því að ryðja meðaltekjufólki út af vaxtabótakerfinu. Framlögin eru því í raun tilflutningur á peningum en ekki aukning til húnsæðismála,\" bendir Árni Páll á í aðsendri grein í Fréttablaðinu í dag.