Ríkisstjórnin minntist afmælis kosningaréttar kvenna á fundi sínum í morgun og samþykkti þar fimm ára áætlun um kynjaða hagstjórn og fjárlagagerð.
Á þennan veg fylgja ríkjandi stjórnvöld eftir þeirri kynjugu hagstjórn sem ákveðin var af vinstristjórninni á síðasta kjörtímabili, en með henni er stefnt að því að réttlæti og sanngirni haldist í hendur við efnahagslega velferð.
Samstaða verður annars einkennismerki Alþingis í dag, en fyrir því liggur þingsályktunartillaga um að 100 ára afmælis kosningaréttar kvenna í dag verði minnst með því að stofna Jafnréttissjóð Íslands. Sjóðnum er ætlað að starfa í fimm ár og hafa það hlutverk að fjármagna eða styrkja fjölþætt verkefni sem ætlað er að stuðla að frekari framþróun á sviði jafnréttismála hérlendis og efla stöðu kvenna á alþjóðavísu.
Í tilkynningu frá ríkisstjórninni í morgun segir eftirfarandi vegna þessa: \"Með hliðsjón af þeim fjölþættu verkefnum sem Jafnréttissjóði Íslands er ætlað að sinna þykir heppilegt að stjórnsýsla sjóðsins, bæði varsla sjóðsins og dagleg umsýsla, heyri undir forsætisráðuneytið. Innan ráðuneytisins er nú starfandi rannsóknarsjóður en með hliðsjón af þingsályktunartillögunni tekur Jafnréttissjóður Íslands við rannsóknarverkefnum þess sjóðs þann tíma sem Jafnréttissjóður Íslands starfar.
Það er einkar ánægjulegt að Ísland hefur síðastliðin sex ár skipað efsta sætið á lista Alþjóðaefnahagsráðssins yfir kynjajafnrétti. Sú niðurstaða endurspeglar þann árangur sem náðst hefur á sviði jafnréttismála á síðustu áratugum. Það er hins vegar óumdeilt að fjölmargt má betur fara í jafnréttismálum. Nauðsynlegt er að takast á við þessi verkefni og halda þannig áfram uppbyggingu samfélags jafnréttis og lýðræðis. Rannsóknir hafa ítrekað sýnt fram á að aukið jafnrétti getur aukið lífsgæði allra því aukið kynjajafnrétti hefur jákv æð áhrif á hagvöxt og efnahagsstöðugleika auk þess að bæta samkeppnisstöðu ríkja.
Þegar litið er til góðs árangurs Íslendinga á sviði jafnréttismála í alþjóðlegum samanburði er rökr étt að Íslendingar leggi sitt af mörkum til þess að styðja enn frekar við jafnréttisstarf á á alþjóðavísu.\"