Píratar mælast nú langstærsti flokkur landsins með 30% fylgi á meðan sá næststærsti, Sjálfstæðisflokkurinn er með um 23% að því er fram kemur í nýrri Gallup-könnun. Stuðningur við ríkisstjórnina er kominn niður í 32%, sem er minna fylgi en ríkisstjórn Jóhönnu Suigurðardóttur naut á miðju síðasta kjörtímabili.
Birgitta Jónsdóttir segir við mbl.is í dag að með þessum aukna stuðningi fylgi meira álag, en að það sé jákvætt álag. Segir hún að ekki sé hægt að lýsa því andrúmslofti sem nú ríki innan hreyfingarinnar á annan hátt en að það sé „eins og kosningastemming á miðju kjörtímabili.“ Aðspurð um ástæður þessarar miklu fylgisaukningar segir Birgitta að hún telji það stafa af því að Píratar séu fjærst hinu hefðbundna valdi, en traustið á venjulegum stjórnmálaflokkum sé að minnka. Þá séu þingmenn flokksins mjög ólíkir sem sé jákvætt þar sem það skapi meiri víðsýni innan flokksins.
Fylgi Pírata hefur aukist um 5% frá því í febrúar en það vex mj0g á kostnað annarra stjórnarandstöðuflokka, svo sem Bjartrar framtíðar sem hefur ekki mælst minni frá sípustu kosningum, er með 8% nú og þá hefur fylgi Samfylkingarinnar ekki verið lakara í bráðum tvvö ár, er nú 14%. Framsókn tapar sem mikli meira fylgi en hinn stjórnarflokkurinn frá kosningum, en 10% landsmanna eru nú hallir undir framsókn.