Þjóðmálarýnirinn orðhvati, Jónas Kristjánsson segir vart hægt að finna aðra ríkisstjórn í sögu landsmanna sem hafi fallið jafn hratt í áliti þjóðarinnar og þá sem situr núna við völd.
\"Aðeins ein ríkisstjórn í sögu skoðanakannana hefur fallið brattar en núverandi stjórn Sigmundar og Bjarna. Stjórn Geirs og Ingibjargar Sólrúnar hrundi. Fallið var ekki svona bratt hjá Jóhönnu og Steingrími,\" skrifar Jónas, en vert er að rifja upp fræg orð Bjarna Benediktssonar formanns Sjálfstæðisflokksins í pontu Alþingis á síðasta kjörtímabili sem krafðist þess að Jóhanna skilaði lyklunum, svo hratt hefði fylgið fallið af hennar ríkisstjórn. Spurning er þá hvort Bjarni vilji vera samkvæmur sjálfum sér.
En Jónas skrifar í dag: \"Við höfum þrjár ríkisstjórnir í röð, sem hafa valdið þjóðinni vonbrigðum. Kannanir sýna, að hálf þjóðin hefur gefizt upp á hefðbundnum pólitíkusum og flokkum þeirra. Fall Bjartrar framtíðar er af sama toga. Fólk fattaði allt í einu, að sá nýi flokkur var í raun einn af gömlu flokkunum, gamall frá fæðingu. Allt þetta stefnir kjósendum eindregið til flokksins, sem sýnir í verki gerólík vinnubrögð, einkum gegnsæi og lýðræði.\"