Stjórnin með kjaftshöggið í andlitinu

Staða Bjarna Benediktssonar á stóli forsætisráðherra var fyrsta umræðuefnið í fréttaskýringaþættinum Ritstjórarnir á Hringbraut í gærkvöld, en faldar skýrslur um Leiðréttinguna og Panamaskjölin og neitun hans að koma fyrir þingnefnd sakir síðarnefnda plaggsins eru þar sagðar munu reynast honum þungur farangur.

Þetta er mat þeirra Eggerts Skúlasonar, fyrrverandi ritstjóra DV og Þórunnar Elísabetar Bogadóttur, aðstoðarritstjóra Kjarnans sem eru gestir Sigmundar Ernis í þættinum þar sem rýnt er í stöðu og eðli nýrrar ríkisstjórnar, auk þess sem góður tími fer í að ræða hvað Donald Trump mun komast upp með á valdastóli sínum vestanhafs. Þáttinn má nú sjá hér á vef stöðvarinnar.

Eggert og Þórunn eru sammála um að þingmönnum og ráðherrum Bjartrar framtíðar og Viðreisnar muni reynast erfitt að koma pólitík þeirra í verk í samstjórn með Sjálfstæðisflokknum - og líklega muni það fara svo að gamla góða íslenska kerfið hafi fullan sigur á yfirstandandi kjörtímabili; litlu verði hnikað og kerfisbreytingar verði fáar, nema ef vera kynni í neytendamálum, enda muni það verða tveimur fyrrnefndu flokkunum lífssnauðsynlegt að sýna einhvern lit og lífsmark á kjörtímabilinu, annars eigi þeir sér ekki viðreisnar von. Áskoranirnar séu vissulega margar og snúist sumar hverjar um grundvallaratriði, svo sem um einkavæðingu náttúrunnar og heilbrigðiskerfisins, en líkleg niðurstaða sé að ráðamenn þori þar litlu að breyta; mjög naumur meirihluti þýði í raun og sann að stóru slagirnir verði ekki teknir á komandi mánuðum og misserum.

Og svo er hitt; lifir stjórnin út kjörtímabilið? Eggert er klár á því að svo verði ekki, hún hafi tekið við með kjaftshöggið í andlitinu, jafnt frá fjölmiðlum og almenningi, sögulegt met í óvinsældum á fyrstu vikum líftíma hennar megi að sögn Þórunnar rekja til þess að hún hafi einfaldlega tekið of seint við völdum eftir kosningar, afar fátítt sé að heilir tveir mánuðir líði frá kosningum til valdaskipta í landinu - og svo er hitt, bendir Eggert á; ný stjórn endurspegli ekki lyktir þingkosninganna sem hafi öðru fremur verið ákall um breiða stjórn sem ynni yfir miðju íslenskra stjórnmála, en niðurstaðan sé fjarri því, við blasi tæpasta hægristjórn íslenskrar stjórnmálasögu þar sem klofinn Sjálfstæðisflokkur reyni að fela sundrungu og óvild sín á milli.

Ritstjórarnir byrja klukkan 21:00 í kvöld.