Stjórnin kynnir haftaáætlun í dag

Búist er við því að haftaáætlun ríkisstjórnarinnar verði kynnt á ríkisstjórnarfundi undir hádegi en hún er fólgin nokkrum frumvörpum sem eiga að taka fjölmörgum hliðum fjármagnshaftanna.


Eitt þessara frumvarpa felur í sér 40% stöðugleikaskatt sem nokkuð hefur verið í umræðunni, en takist slitabúum föllnu bankanna ekki að ljúka uppgjöri sínu með nauðasamningum sem ógna ekki greiðslujöfnuði þjóðarbúsins til lengri tíma litið og áætlun um losun hafta, munu þau þurfa að inna af hendi skatt sem nemur 40% af eignum þeirra samkvæmt frumvarpi um stöðugleikaskatt. Slitabúin hafa fáar vikur til stefnu til að ljúka slíkum nauðasamningum vilji þau forðast að greiða stöðugleikaskattinn áður en hann tekur gildi, samkvæmt öruggum heimildum DV.


Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, mun gera grein fyrir frumvörpum ríkisstjórnar vegna áætlunar um losun hafta á fundi ríkisstjórnarinnar í dag.