Kostnaður vegna ferða ráðherra í ríkisstjórn Íslands til útlanda á fyrri hluta kjörtímabilsins nemur alls 159,2 milljónum króna að því er fram kemur í svari ráðuneytanna við fyrirspurn Katrínar Júlíusdóttur þingmanns Samfylkingarinnar.
Kostnaðurinn er meira en helmingi meiri en hann var hjá fyrri ríkisstjórn á fyrri hluta síðasta kjörtímabils, en alls hafa ráðherrarnir farið 158 sinnum til útlanda á þessum tveimur árum.
Ferðaglaðastur er utanríkisráðherra, eðli málsins samkvæmt, en 46 utanlandsferðir hans á þessu tímabili hafa kostað 54,3 milljónir króna. Iðnaðar- og viðskiptaráðherra er næstdýrastur á fóðrum í þessum efnum en 23 utanferðir ráðherrans hafa kostað 19,3 milljónir króna.
Forsætisráðherra hefur farið í 17 ferðir til útlanda frá því hann tók við völdum og nemur kostnaðurinn við þær 16,7 milljónum króna. Menntamálaráðherra hefur farið í 15 ferðir fyrir 14,4 milljónir króna, sjávarútvegsráðherra 15 ferðir að andvirði 11,8 milljóna króna, innanríkisráðherra 13 ferðir fyrir 12,7 milljónir og fjármálaráðherra og félags- og húsnæðismálaráðherra hafa hvor farið í sínar 12 utanferðir.
Heimaríkasti ráðherrann sem setið hefur frá upphafi kjörtímabilsins er Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra sem hefur farið utan fimm sinnum frá vorinu 2013 - og þá vekur athygli að Sigrún Magnúsdóttir sem tók við umhverfisráðuneytinu af Sigurði Inga á síðasta ári hefur aldrei farið utan frá því hún tók við embætti.