Viðskiptaráð segir að þær leiðir sem stjórnvöld eru að fara í málefnum ferðaþjónustunnar geri ekkert annað en að auka álögur á allan almenning og nái engan veginn fram þeim markmiðum að byggja upp helstu áfangastaði erlendra ferðamanna á Íslandi.
Ráðið sendi frá sér ályktun í dag í tilefni af því að stjórnvöld hafa fallið frá áformum um upptöku náttúrupassa: "Þess í stað stendur til að fjármagna uppbyggingu og viðhald ferðamannastaða með fjárframlögum úr ríkissjóði. Því er ljóst að kostnaður vegna aukins átroðnings á helstu ferðamannastöðum verður borinn af skattgreiðendum í stað þeirra sem njóta þjónustunnar. Afleiðingar þess verða óhjákvæmilega hærri álögur eða skert þjónusta í öðrum málaflokkum," segir í ályktuninni.
Ennfremur segir þar: "Viðskiptaráð lýsir yfir vonbrigðum með þessa niðurstöðu, enda telur ráðið gjaldtöku á ferðamannastöðum vera bestu leiðina til að fjármagna uppbyggingu ferðaþjónustu. Slík gjaldtaka leggst á þá sem njóta ávinningsins af uppbyggingu ferðamannastaða, getur dregið úr átroðningi á vinsælustu áfangastaðina og skapar hvata fyrir greinina til að koma á fót nýjum áfangastöðum. Með beinum framlögum úr ríkissjóði verður engu þessara markmiða náð."