Ríkisstjórnin vinnur augljóslega að einkavæðingu heilbrigðisþjónustunnar, sama þó hún þvertaki fyrir það. Ríkisstjórnin gerir það með verkum sínum og einkaaðilar grípa tækifærin.
Þetta fullyrðir þingmaðurinn Ögmundur Jónasson í grein sem hann birtir í Morgunblaðinu í dag en þar segir hann að fjárfestar koma nú í auknum mæli að rekstri hjúkrunarþjónustu og eftir því sem hlutur þeirra aukist, þeim mun meira mun fara fyrir kröfum um arð út úr starfseminni. Þá veki athygli að lífeyrirssjóðir landsmanna séu komnir á fulla ferð í þessa vegferð, án þess að aðstandendur þeirra hafi tekið almenna umræðu um þá stefnu.
Hann segir að á undanförnum árum hafi verið þrengt að heilbrigðisþjónustunni og fólk streymi þaðan út vegna óánægju með með kjör sín. Því hafi skapast jarðvegur fyrir þá einkarekinni þjónustu í formi sjúkrahótela, heimaþjónustu, hjúkrunarþjónustu og einkarekinna lækningamiðstöðva.
Ögmundur skrifar að hér sé um grundvallarbreytingu að ræða sem að hann mati sé uggvænleg: \"Ég hygg að framtíðarlandið í huga þeirra sem að þessum breytingum standa sé sú hugsun að ríkið greiði grunninn en síðan verði opnað á viðbótargjald á grundvelli framboðs og eftirspurnar. Þar með væri komið kerfi sem raunverulega mismunaði því skattgreiðandinn sæi um grunninn en efnafólk gæti síðan keypt sig fram fyrir og hugsanlega einnig notið betri þjónustu og aðstöðu. Sjálfum finnst mér ekkert við það að athuga að læknar og hjúkrunarfræðingar reki einkavædda þjónustu. Það er algerlega þeirra mál svo lengi sem þeir vilja ekki fá peninga frá mér og öðrum skattgreiðendum! Þá viljum við hafa hönd í bagga. Mér finnst ekki koma til greina að ein einasta króna fari til þess að búa til kerfi mismununar eins og einkavæddur sjúkrahúsrekstur á endanum gerir,\" skrifar þessi fyrrverandi innanríkisráðherra í Morgunblaðinu í dag.