Mikil andstaða er gagnvart Ríkisútvarpinu meðal stjórnarflokkanna.
Þetta segir Brynhildur Pétursdóttir, þingmaður BF, í nýrri facebookfærslu.
„Í gær greiddu þeir atkvæði um að lækka nefskattinn (sem hvert nef greiðir einu sinni á ári auk fyrirtækja) úr 17.800 kr í 16.400 kr. Gjaldið hafði einnig lækkað í fyrra. Minni hlutinn vildi halda gjaldinu óbreyttu og gefa RÚV tækifæri til að ná rekstrinum í jafnvægi. Menntamálaráðherra hafði boðað frumvarp þar sem gjaldið yrði ekki lækkað en kom því ekki í gegnum ríkisstjórnina. Hann greiddi svo sjálfur atkvæði gegn tillögu minnihlutans þrátt fyrir að hafa að eigin sögn mikinn skilning á stöðu RÚV. Mjög súrrealískt svo ekki sé meira sagt,“ skrifar Brynhildur.
Hún segir einnig að þverpólitísk stjórn RÚV hafi komið á fundi fjárlaganefndar og talað máli stofnunarinnar auk útvarpsstjóra. „Ég vil að þjóðin reki öflugan miðil og hef ekki orðið vör við að fólk sjái eftir því að borga tæpar 18.000 kr. til að halda úti öflugum almannamiðli þar sem eignarhaldið er skýrt.“
Brynhildur segist þó opin fyrir því að hlutverk RÚV sé skoðað og að við eigum að vera gagnrýnin á þessa mikilvægu menningarstofnun sem við eigum öll saman.
„Ég myndi t.d. vilja sjá miklu meira af ítarlegum fréttaskýringum um málefni líðandi stundar og jafnvel meira vægi á fréttir þótt það sé nú þegar nokkuð mikið. Eins finnst mér stofnunin alls ekki sinna öllu landinu nægilega vel, hún er mjög höfuðborgarmiðuð. Fólk getur haft ýmsar skoðanir á RÚV og það er eðlilegt en hvað sem öllu líður finnst mér virkilega varhugavert að sömu öfl og hafa gagnrýnt RÚV fyrir fréttaflutning séu markvisst að brjóta stofnunina niður.“