„Ríkisstjórnin gefur á garðinn áfram til þeirra efnameiri og lækkar á þá skatta eins og enginn sé morgundagurinn. Hverjir eiga að standa undir velferðarkerfinu og skuldbindingum inn í framtíðina ef okkar kynslóð ætlar ekki að leggja sitt af mörkum miðað við efni og aðstæður?“
Þannig spyr þingmaður í stjórnarandstöðunni, Lilja Rafney Magnúsdóttir alþingismaður í Norðvesturkjördæmi í grein sem hún sendi fjölmiðlum til birtingar í dag.
Fjárlögin eru þingmanninum umræðuefni. Lilja Rafney staðhæfir að verið sé að leggja af þrepaskipta skattakerfið sem sé miklu sanngjarnara gagnvart þeim tekjuminni. Eflaust hefði mátt endurskoða prósentutöluna og bilið á milli þrepa en fækkun þrepa þýði bara eitt, lægri skatta á þá efnameiri.
Ríkisstjórnin hefur frá því að hún tók við aflétt sköttum allt að 45 milljörðum í formi skatta, auðlegðarskatts, orkuskatts, veiðigjalda, vörugjalda og tolla sem hún hampar nú svo mjög. En gleymum ekki því að hún hækkaði matarskattinn svo um munaði og aukinn kostnaður er í ýmiss konar beinum kostnaði fyrir almenning í heilbrigðis og menntakerfinu,“ segir Lilja Rafney.