Fjölda veitingastaða úti á landi var lokað í gær á öðrum sólarhringi tveggja daga verkfalls félagsmanna í Starfsgreinasambandinu, en á þeim stöðum sem opnir voru gengu stjórnendur og eigendur í störf ófaglærðra á staðnum, svo sem þeir hafa heimild til.Fjölda
Á Hamborgarabúllunni á Selfossi stóðu hjónin Gunnar Már Þráinsson og Telma Finnsdóttir vaktina í gærkvöld og voru á þönum enda engu öðru starfsfólki fyrir að fara á staðnum nema þeim tveimur stjórnendum staðarins. Verkfallsverðir á vegum Starfsgreinasambandsins litu við á staðnum í gærkvöld til að athuga hvort allt færi þar ekki að settum reglum í vinnustöðvuninni - og svo reyndist vera.
Matsölustaðir á þjónustusvæði Starfsgreinasambandsins, sem er utan höfuðborgarinnar og Suðurnesja, hafa ekki aðeins liðið fyrir skort á starfsfólki vegna tíðra vinnustöðvana að undanförnu heldur er einnig orðið erfitt með aðföng; verkfall dýralækna hjá Bandalagi háskólamanna, sem staðið hefur yfir í mánuð, gerir það að verkum að takmarkað framboð er af kjöti, jafnt innlendu kjúklinga- og svínakjöti, svo og innfluttu nautakjöti en í báðum tilvikum þarf vottun dýralækna.
Ótímabundið verkfall Starfsgreinasambandsins sem telur tíu þúsund félagsmenn hringinn í kringum landið hefst undir lok mánaðarins.