Stjórnendur RÚV hafa lagt fram kröfur til stjórnvalda sem fela í sér samtals 5,9 milljarða skilyrt viðbótarframlag næstu fimm árin, en fram hefur komið að stofnunin á við verulegan rekstrarvanda að stríða.
Lagt er til að ríkið yfirtaki skuldabréf við Lífeyrissjóð starfsmanna ríkisins, LSR, að fjárhæð 3,2 milljarðar, veiti 182 milljóna viðbótarframlag í ár og tryggi 2,5 milljarða í aukatekjur með útvarpsgjaldi, með því að falla frá stiglækkandi útvarpsgjaldi. Samanlagt eru þetta 5,9 milljarðar króna. Án þessara aðgerða telja stjórnendur RÚV að skera þurfi niður þjónustuna frekar.
Þetta kemur fram í ítarlegri úttekt Morgunblaðsins í dag um rekstrarvanda RÚV í tilefni af útkomu skýrslu nefndar um starfsemi og rekstur RÚV frá 2007 sem Hringbraut fjallar jafnframt ítarlega um hér á fréttasíðum sínum.
Í skýrslunni kemur fram að heildarskuldir RÚV voru 6.627 milljónir 31. ágúst sl. og að félagið fékk 2 milljarða í aukaframlög árin 2007-2009.
Stjórnendur RÚV draga upp dökka mynd af rekstri félagsins til 2020 ef ekki kemur til áðurnefndrar aðstoðar. Þannig geti uppsafnað tap orðið um 4 milljarðar á tímabilinu.