Guðbjörg Heiða Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri Marel á Íslandi, var gestur Jóns G. í gærkvöldi en hún fékk FKA-viðurkenninguna í síðustu viku. Þar með er hún komin í hóp margra valinkunnra kvenna og leiðtoga í atvinnulífinu sem hafa fengið þessa eftirsóttu viðurkenningu.
Guðbjörg Heiða er verkfræðingur og það orð fer af henni að hún sé mjög árangursdrifinn stjórnandi og umhugað um að allir leggi sig fram. Um það hvernig best sé að hvetja starfsmenn til dáða, segir hún að stjórnendur hvetji aðra mest með því að vera sjálfir góðir fyrirmynd. „Það vilja allir finnast þeir hafa skilað góðu dagsverki,“ segir hún og bætir við að nauðsynlegt sé að kynna vel fyrir starfsmönnum eftir hverju sé sóst og hvað búi að baki. „Það verður að vera einlægt samtal annars gerist ekkert.“
Þau Jón G. ræða sömuleiðis hina rómuðu fyrirtækjamenningu hjá Marel sem byggist á mikilli einingu starfsmanna um að standa sig vel við að innleiða tækninýjungar í góðu og þægilegu starfsumhverfi og andrúmi; fjölskylduvænu og notalegu þar sem frítími starfsmanna er meðal annars virtur.
Spurð um það eftir hvaða eiginleikum sé sóst við ráðningu starfsmanna og hvort starfsmenn séu valdir út frá fastmótuð kerfi eftir því hvort þeir séu líklegir til að falla inn í fyrirtækjamenningu Marel, segir Guðbjörg að mikilvægt sé þeir hafi góð gildi, eins og heiðarleika, sanngirni, réttlæti og búi yfir ákveðinni menntun og reynslu. „En fjölbreytileikinn skiptir okkur miklu máli. Starfsmenn geta verið með góð gildi og mikla sérfræðiþekkingu þótt þeir sé mjög ólíkir,“ segir Guðbjörg. „Þeir koma hér inn í mikinn fjölbreytileika.“
Þátturinn Viðskipti með Jóni G. er endursýndur á Hringbraut í allan dag og þá má sjá hann á tímaflakki. Hann er ennfreumur kominn inn á heimasíðu Hringbrautar.
Hér er tengill á þáttinn. Viðtalið við Guðbjörgu byrjar á 5:15 mínútu.