Stjórar stærstu fyrirtækja svartsýnni

Þriðjungur stjórnenda í íslenskum atvinnufyrirtækjum telur að núverandi aðstæður í atvinnulífinu séu góðar, tæplega fimmtungur að þær séu slæmar, en helmingurinn að þær séu hvorki góðar né slæmar.


Þetta eru helstu niðurstöður könnunar á stöðu og framtíðarhorfum stærstu fyrirtækja landsins, sem gerð var í maí 2015 af Gallup fyrir Samtök atvinnulífsins og Seðlabanka Íslands.


 


Væntingar um að aðstæður fari batnandi eru mun minni en áður. Nægt framboð er af starfsfólki en helst skortir það í byggingarstarfsemi, flutningum og ferðaþjónustu. Stjórnendur gera ráð fyrir lítilsháttar fjölgun starfsmanna næstu sex mánuði.


Að jafnaði vænta stjórnendur 4,0% verðbólgu á næstu 12 mánuðum sem er mikil breyting frá sambærilegri könnun í desember 2014 þegar stjórnendur væntu þess að 2,5% verðbólgumarkmið Seðlabankans næðist á árinu.