Stjórnendur: efnahagslífið ofhitnar

Niðurstöður könnunar meðal stjórnenda 400 stærstu fyrirtækja landsins einkennast af miklum og vaxandi umsvifum í íslensku efnahagslífi vegna örs vaxtar ferðaþjónustu, stóraukins kaupmáttar heimilanna og vaxandi fjárfestingum.

Mat stjórnenda á núverandi aðstæðum í atvinnulífinu eru svipaðar og á árinu 2007 og mat á aðstæðum eftir 6 mánuði mun betra en þá. Könnunin er gerð ársfjórðungslega fyrir Samtök atvinnulífsins og Seðlabanka Íslands og er framkvæmd hennar í höndum Gallup.

Enn fjölgar fyrirtækjum sem finna fyrir vinnuaflsskorti, en svo háttar til um þriðjung þeirra samanborið við 17% fyrir ári síðan. Búast má við 2% fjölgun starfsmanna á almennum vinnumarkaði á næstu sex mánuðum sem svarar til 2.500 starfa. Skortur á starfsfólki og áformuð fjölgun starfsmanna er langmest í ferðaþjónustu og byggingariðnaði.

Stjórnendur búast við kröftugri aukningu eftirspurnar á innanlandsmarkaði á næstunni og töluverðum hækkunum á verði vörum og þjónustu fyrirtækjanna sem aðfanga þeirra. Jafnframt virðast þeir bjartsýnir um þróunina á erlendum mörkuðum.

 

Fjárfestingar aukast mikið milli áranna 2015 og 2016 í öllum atvinnugreinum nema sjávarútvegi, en þó mest í byggingariðnaði og ferðaþjónustu.

 

Á næstu 12 mánuðum búast stjórnendur við töluverðum vaxtahækkunum, að verðbólgan verði 3% og gengi krónunnar haldi áfram að styrkjast.