Niðurstöður nýrrar könnunar Gallup fyrir SA-Samtök atvinnulífsins meðal stjórnenda 400 stærstu fyrirtækja landsins sýna að þeir telja góðar aðstæður í atvinnulífinu og að svo verði á næstunni.
Nokkru munar þó á mati stjórnenda fyrirtækja í alþjóðlegri samkeppni og annarra fyrirtækja. Fjórir af hverjum tíu stjórnendum finna fyrir skorti á starfsfólki sem er sama niðurstða og fyrir ári. Búast má við um tæplega 1,5% fjölgun starfsmanna á almennum vinnumarkaði næstu tólf mánuði.
Verðbólguvæntingar stjórnenda eru töluvert undir verðbólgumarmiði Seðlabanka Íslands. Stjórnendur vænta þess að verðbólga verði að jafnaði 1,8% næstu tólf mánuði og að verðbólgan verði 3,0% eftir tvö ár.
rtá
Nánar www.sa.is