Stjórnarskrá við \"efstu sársaukamörk\"

Helgi Hrafn Gunnarsson, þingmaður Pírata segir stjórnarskrármálið gríðarleg vonbrigði og við „efstu sársaukamörk“, sér í lagi hvernig lagt er til að kjósendur geti krafist þjóðaratkvæðisgreiðslu. Einnig hvernig aðferðarfræðin hefur verið við vinnu málsins. Stjórnarskrárnefnd Alþingis skilaði á dögunum af sér þrenns konar tillögum um breytingar á stjórnarskránni og forsætisráðherra hefur lagt þær fram í frumvarpi.

Tillögurnar eru mjög gagnrýndar fyrir að vera útþynnt málamiðlun milli þinglokka og fábrotnar miðað við hvað stjórnlagaráð lagði til á sínum tíma. Helgi Hrafn sem fer af þingi eftir kosningarnar í október segir að einn mesti árangur Pírata hafi verið að breyta viðhorfa til fíkla, svo málið sé skilgreint sem heilbrigðismál en ekki afbrot. Nú hefur heilbrigðisráðherra ýtt slíkum breytingum úr vör.

Helgi nefnir einnig í viðtali á Hringbraut í kvöld að Píratar hafi komið áleiðis lagabreytingu um opinber fjármál, með hjálp formanns fjárlaganefndar, að talnagrunnur fjárlaga og fjárlagafrumvarpsins verði aðgengilegur á tölvutæku sniði og á opnum miðli. Þannig verði í framtíðinni hægt að bera saman tölur fjárlaga hvers árs mun auðveldar við fjárlög fyrri ára og ríkisreikning.  Bæði þingmenn og almenningur geti miklu betur greint hvað er á ferðinni í fjármálum með þessu, segir Helgi Hrafn.