Stjórnarsamstarf kyrrstöðunnar

Kafla­skil eru að verða í íslensku efna­hags­lífi eftir upp­gangsár síð­ustu ára. Framundan eru tals­verðar efna­hags­legar og póli­tískar áskor­an­ir. Krónan hefur gefið eftir og verð­bólgan er komin á kreik. Gjald­mið­ill­inn er myllu­steinn íslenskra heim­ila og fyr­ir­tækja og kostn­að­ur­inn við hann er ekki lengur ásætt­an­leg­ur. Spurn­ingin er ekki hvort við eigum að skipta um gjald­miðil heldur hvers vegna við ættum að halda í krón­una? En rík­is­stjórnin hefur valið leið strúts­ins. Hún horfir fram hjá stærsta efna­hags­lega vanda­máli þjóð­ar­innar og hefur engar lausnir fram að færa. Sam­starf fram­sókn­ar­flokk­anna þriggja gengur enda út á kyrr­stöðu – að standa vörð um óbreytt ástand.

Ég held að árið 2018 fari almennt í sögu­bæk­urnar sem alveg ágætis ár fyrir okkur Íslend­inga. Við stöndum vel á alla þá mæli­kvarða helsta sem við notum til við­mið­unar um vel­megun okkar og ham­ingju. Á und­an­förnum árum hefur kaup­máttur okkar auk­ist mikið og almennur upp­gangur ríkt í efna­hags­líf­inu. Við erum meðal ham­ingju­söm­ustu þjóða heims og hvergi mælist jafn­rétti meira en hér. Okkur hefur fjölgað mikið og erum orðin alþjóð­legra, fjöl­breytt­ara og skemmti­legra sam­fé­lag eftir sögu­lega fjölgun inn­flytj­enda á und­an­förnum árum.

Þótt árið hafi verið í flesta staði gott mark­aði það um leið efna­hags­leg kafla­skil. Eftir mik­inn og sam­felldan hag­vöxt und­an­farin 8 ár birt­ast nú ótví­ræð merki víða í sam­fé­lag­inu að tekið sé að hægja á. Fréttum af upp­sögnum fyr­ir­tækja á starfs­fólki hefur farið fjölg­andi og ef marka má kann­anir meðal stjórn­enda má vænta frek­ari upp­sagna á kom­andi ári. WOW lenti í alvar­legum rekstr­ar­vanda og þótt útlit virð­ist fyrir að tek­ist hafi að koma flug­fé­lag­inu fyrir vind verður starf­semi þess tals­vert umfangs­minni á næsta ári með til­heyr­andi áhrifum á ferða­þjónstuna. Auk­innar svart­sýni gætir enda í atvinnu­líf­inu og hafa stjórn­endur fyr­ir­tækja ekki verið svart­sýnni frá því fyrir hrun. Það virð­ist ljóst að við getum

https://kjarninn.is/skodun/2018-12-23-stjornarsamstarf-kyrrstodunnar/

ekki vænst við­líka efna­hags­upp­gangs á næsta ári og und­an­farin ár hafa fært okk­ur.