Stjórnarsamstarf sagt vera eldfimt

Ljóst er af svörum Bjarna Benediktssonar formanns Sjálfstæðisflokksins og fjármálaráðherra að honum er verulega misboðið vegna harkalegs útspils Eyglóar Harðardóttur félagsmálaráðherra um helgina. Bjarni snuprar hana harkalega í svörum sínum. Óvanalegt er að ráðherrar talist við með þessum hætti í gegnum fjölmiðla.r


Í grein í Kjarnanum í dag þar sem vitnað er í mbl.is, segir Bjarni það rangt að hann hafi gert efnislega athugasemd við frumvarpið og að hann hafi viljað að Eygló endurkallaði það af efnislegum ástæðum. „Ég verð að lýsa mik­illi furðu á því upp­hlaupi sem hef­ur orðið út af þessu til­tekna máli allt frá því að það var fyrst lagt fram til kostnaðarmats í fjár­málaráðuneyt­inu,“ segir Bjarni. 


Hann segir enn fremur að Eygló verði að sætta sig við að frum­varp henn­ar lúti sömu regl­um og önn­ur slík; fumvörp þurfi að vera fullunninn áður en kostnaðarmat sé framkvæmt. Að því loknu séu þau tekin á dagskrá í ríkisstjórn og því næst í þingflokkum stjórnarflokkanna ef ríkisstjórnin hefur ákveðið að leggja þau fram á Alþingi. „Fé­lags­málaráðherra verður ein­fald­lega að sætta við það að þetta mál sé unnið eft­ir sömu regl­um og önn­ur mál,“ segir Bjarni á mbl.is og hefur lýst þeirri skoðun sinni að ekki sé hægt að kostnaðargreina frumvörp sem fagráðherra sjálfur sé sífellt  að hræra í.


Ráðherrar í ríkisstjórn Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar hafa ekki áður talað með þessum þætti hvor við annan í gegnum  fjölmiðla, en eftir því hefur verið tekið um helgina hversu harður tónn formanns Sjálfstæðisflokksins hefur verið í garð eins af ráðherrum Framsóknarflokksins.  


Stjórnmálafræðingar sem hringbraut.is hefur verið í sambandi við vegna málsins í dag segja að meta megi ástandið innan stjórnarflokkanna sem svo að það sé eldfimt.