Stjórnarráðssíður hakkaðar

Heimasíður stjórnarráðs Íslands liggja niðri vegna tölvuárása Anonymous samtakanna. 

Hakkarar hafa birt lista yfir fleiri heimasíður sem eru skotmörk þeirra. Árásirnar eru liður í aðgerð þeirra sem nefnist Operation Killing Bay og eru vegna hvalveiða Íslendinga.

Samkvæmt visir.is eru atlögur sem þessar kallast Denial of Services Attack (DOS) eða Distributed Denial of Service Attack (DDOS) og eru gerðar með því að stýra umferð inn á vefsíður í því magni að þær taka ekki lengur við heimsóknum og leggjast af.

Uppfært kl. 11.38: Síðurnar eru nú komnar upp á ný. Þær lágu niðri í 13 tíma.