Einar Páll Gunnarsson, sem er formaður félags ungra fjárfesta, segir nauðsyn að öll þjóðin hafi kost á að fylgjast með þegar væntanleg ríkisstjórn, hver sem hún verður, verður mynduð. Brýnt sé að allir sitji við sama borð til að vega og meta áhrif þess sem samið verður um.
Hann nefnir fullkomlega tilbúið dæmi: „Stjórnarmyndurnarviðræður Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Bjartrar framtíðar eru á lokametrunum, einungis á eftir að ganga frá skiptingu ráðherrastóla. Meðal þess sem getið er um í stjórnarsamningum er að kvótinn verður ekki boðin upp á markaði. Þingmaður Viðreisnar talar við vin sinn Magnús og segir honum frá stöðu mála í trúnaði. Magnús hringir beint í verðbréfamiðlara og kaupir hlut í HB Granda vegna þess að þessar upplýsingar munu líklega koma til með að hækka markaðsverð HB Granda þegar þær verða gerðar opinberar. Ef staðan væri öfug, að Sjálfstæðisflokkurinn hefði samþykkt að bjóða upp kvótann þá myndi Magnús selja bréf í HB Granda því að öllum líkindum myndi sú ákvörðun valda lækkun á virði bréfanna .“
Einar Páll segir dýrmætar innherjaupplýsingar geta orðið til við gerð stjórnarsáttmála og því verði að tryggja opið ferli.
Viðtal við Einar Pál Gunnarsson er á dagskrá Þjóðbrautar í kvöld klukkan 21:00.