Hinn 26. júní 2016 varð ljóst hver hafði haft sigur í forsetakosningunum. Um leið og Guðni Th. Jóhannesson fagnaði sigrinum hélt hann upp á 48 ára afmæli sitt í faðmi fjölskyldunnar í Vesturbæ Reykjavíkur. Hann tók svo við embættinu 1. ágúst fyrir sléttum tveimur árum.
Guðni sat ekki lengi auðum höndum heldur heimsótti Sólheima, Fiskidaginn á Dalvík og ávarpaði Gay Pride, allt á innan við viku.
En það hefur ekki bara verið léttleiki í embættistíð Guðna. Tvennar alþingiskosningar hafa farið fram og því hafði forsetinn í nógu að snúast í því að ræða við formenn stjórnmálaflokka og veita umboð til myndunar ríkisstjórnar. Þá reis mikil óánægja í samfélaginu þegar ljóst að forsetinn hafði veitt dæmdum kynferðisbrotamönnum uppreist æru. Guðni bað fórnarlömb þeirra afsökunar og hvatti til þess að lögum yrði breytt. Það var svo harðlega gagnrýnt að forseta danska þjóðþingsins hefði verið veitt fálkaorða.
Þá vakti mikla athygli í nóvember 2016, þegar Guðni ákvað að afþakka launahækkun kjararáðs. „Ég bað ekki um þessa hækkun, ég vissi ekki af þessari hækkun, ég þarf ekki þessa hækkun,“ sagði Guðni á blaðamannafundi þegar hann var spurður um hækkunina.
Í upphafi kjörtímabilsins voru miklar væntingar til Guðna og einn viðmælandi fréttastofu á förnum vegi, Ottó Markhússon, vonaðist til að Guðni kæmi „með eitthvað nýtt í embættið.“ Og það er óhætt að segja að það hafi gengið eftir.
Nánar á
http://www.ruv.is/frett/stjornarmyndanir-umdeild-mal-og-ananaspitsur