\"Hér fara auðvitað saman hagsmunir margra aðila og samfélagsins alls,\" sagði hann í frétinni: \"Það eru auðvitað fjölmörg fyrirtæki í ýmsum stærðum sem byggja afkomu sína að hluta til á makrílveiðum. Það hafa til að mynda mjög margir smábátasjómenn á undanförnum tveimur til þremur árum fjárfest gríðarlega mikið á sinn mælikvarða í þessari grein. Það blæs ekki byrlega hjá þeim núna, verandi með skuldir í þessum fjárfestingum,“ sagði Jón.
Gunnar Bragi Sveinsson, utanríkisráðherra, hefur gefið út að íslensk stjórnvöld kviki hvergi frá ákvörðun sinni um að styðja við refsiaðgerðir gegn Rússum vegna hernaðaraðgerða Rússa í Úkraínu.
Og sitt sýnist hverjum á stjórnarheimilinu því Karl Garðarsson þingmaður Framsóknarflokksins gefur lítið fyrir þá sem vilja haga hér seglum eftir vindi.Hann segir ekkert til sem heiti að vera hlutlaus í þeim hildarleik sem eigi sér stað í Úkraínu og að gefa eftir í málefnum þeirra væru skelfileg skilaboð: \"Ef við getum ekki staðið með þjóðum sem búa við ofríki nágranna sinna sem virða ekki alþjóðasamninga, þá skulum við ekki gera kröfur um stuðning annarra þjóða næst þegar við þurfum á slíku að halda.“
Hann segir engan skort á stórgrósserum og fylgitunglum þeirra á íslandi sem eru tilbúnir til að selja sálu sína fyrir aurinn - tilbúnir til að fórna mannréttindum og lýðræði fyrir stundargróða. Þetta fólk láti sig engu skipta þótt 7.000 manns hafi látið lífið í austurhluta Úkraínu og að milljónir til viðbótar séu á vergangi.
Þingmaðurinn Jón Gunnarsson er hinsvegar hugsi um stöðu atvinnulífsins: \"Fyrirtæki á norðaustur- og austurlandi og í Vestmannaeyjum hafa á undanförnum árum fjárfest fyrir tugi milljarða og þetta er auðvitað högg fyrir okkur öll og við getum ekki nálgast málið út frá þessum sjónarmiðum,“ sagði Jón. „Auðvitað mun þetta rýra afkomu þessara fyrirtækja, en fyrirtækin munu komast í gegnum þetta en ég hef ekki áhyggjur af því. Ég hef áhyggjur af starfsfólkinu og hagsmunum þessara minni aðilega sem þetta verður hlutfallslega erfiðara fyrir.“
Jón segir enga óeiningu vera meðal stjórnarflokkanna vegna afstöðu utanríksráðherra. Hins vegar séu hagsmunir Íslands miklir í málinu: \"Við teljum að við eigum að standa með bandalangsþjóðum okkar gegn þeim mannréttindabrotum sem eiga sér stað í Úkraínu. Um þetta er alger samstaða og var alger samstaða um innan utanríkismálanefndar. Hitt er svo annað mál að þegar grannt er skoðað kemur að þessar viðskiptahindranir hitta Íslendinga og Ísland miklu harðar fyrir en bandalagsþjóir okkar. Ég hef talað skýrt í þeim efnum. Ég tel að þær bandalagsþjóðir okkar beri ákveðnar skyldur gagnvart okkur. Þær þurfa að sýna okkur samstöðu, til að mynda með því að aflétta tollum og slíku inn í Evrópusambandið af þessum afurðum og létta okkur róðurinn í þessu máli.
Jón segist ekki vilja hætta stuðningi við refsiaðgerðir við Rússa, en nauðsynlegt sé að bandalagsþjóðir komi til móts við Íslendinga