Stjórnarliðar æfir vegna lekans

Mikill kurr er í þingliði Sjálfstæðisflokksins vegna augljóss leka um inntak fjármagnshaftafrumvarpanna úr herbúðum Framsóknarflokksins til DV síðastliðinn föstudag sem olli skjálfta á fjármálamörkuðum, en það hefði getað bakað ríkinu tjón ef ekki hefði verið gripið inn í ferlið með lagaetningu Alþingis í gærkvöld.


Lekinn gaf slitabúum föllnu bankanna færi á að nýta sér glufur eða hjáleiðir til að komast hjá stöðugleikaskattinum á útstreymi fjármagns, en talið er að hann verði um 40% og afli ríkissjóði að minnsta kosti tugmilljarða í tekjur sem fjármálaráðherra hefur boðað að notaðir verði til að lækka skuldir ríkissjóðs. Már Guðmundsson Seðlabankastjóri staðfesti á fundi efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis, sem kölluð var saman til skyndifundar í gær, að upplýsingalekinn til síðdegisblaðsins hefði haft það mikil áhrif á fjkármálamarkaðinn og nauðsynlegt hefði þótt að grípa inn í ferlið "ekki síðar fyrir opnun skrifstofu Seðlabankans í morgun." Því var skotið á nefndarfundi seint á sunnudag til að viðra efna frumvarpanna, þau síðan kynnt í ríkisstjórn og þingflokkunum og að svo búnu gengið til þingfundar þar sem breytingar á lögum um gjaldeyrishöft voru samþykktar í snarhasti fyrir miðnætti í gær, án mótatvæða. Stjórnarandstaðan var þar á einu máli um að koma málinu í gegn svo fljótt sem auðið væri, enda málið talið brýnt af hálfu Seðlabankans sem hafði unnið að faglegum undirbúningi þess í miklum trúnaði við fjármálaráðuneytið um langt skeið - og því fór svo að málið var afgreitt á vel innan við klukkustunds.


Heimildir Hringbrautar herma að hvorki fjármálaráðherra né þingliðum Sjálfstæðisflokksins sé skemmt yfir þessari uppákomu í liði framsóknarþingmanna sem er í reynd næsta reyfarakennd, eða eins og einn þingmaður flokksins orðaði það við vefinn seint í gærkvöld: "Það er ekki einu sinni hægt að treysta þessu fólki fyrir viðkvæmustu upplýsingum um brýna hagsmuni þjóðarinnar," eins og hann sagði nokkuð ákveðið með eftirfarandi botni: "Einhvern tíma hefði nú heyrst orðið "landráð" úr munni þeirra sjálfra af minna tilefni." 


Forsætisráðherra og fjármálaráðhera kynna efni frumvarpanna um losun gjaldeyrishaftanna á blaðamannafundi í kaldalónssal Hörpu á hádegi í dag.