Stjórnarlaunin hækkuð um ríf 14%

Samþykkt var á aðalfundi Íslandsbanka á miðvikudag að hækka laun stjórnarmanna bankans um 14,3 prósent. Laun Friðrik Sophussonar, stjórnarformanns Íslandsbanka, hækka um 75 þúsund krónur á mánuði en laun hins almenna stjórnarmanns um 50 þúsund krónur samkvæmt þessu. Laun stjórnarmanna fyrir nefndarsetu voru sömuleiðis hækkuð um 25 prósent.


Fram kemur á fréttav efnum dv.is í dag að aðalfundur Arion banka hafi einnig samþykkt í síðustu viku að hækka stjórnarlaun um 2,75 prósent að meðaltali. Í kjölfarið hækki árslaun Monicu Caneman, stjórnarformanns bankans, um hálfa milljón á ári við þessa ákvörðun. Bankasýsla ríkisins hafi lagst gegn tillögunni hjá Arion banka en lagt blessun sína yfir ráðstöfunina í Íslandsbanka.