Formaðurinn hækkar í 4,7 milljónir

Ný stjórn Isavia var skipuð í lok síðustu viku þegar ársfundur Isavia ohf., hins opinbera hlutafélags var haldinn. Turisti.is hefur undanfarið fjallað um stjórnarmál Isavia en í stjórnina veljast aðeins fulltrúar flokka á Alþingi. Stjórnir þeirra fyrirtækja sem sjá um rekstur flugvallanna í Noregi og Svíþjóð skipa ekki pólitíkst í stjórnirnar.

 

Á aðalfundinum fyrir helgi var samþykkt að laun stjórnarmanna myndu hækka úr 180 þúsund krónum á mánuði í 195 þúsund krónur fyrir starfsárið 2018 til 2019. Stjórnarformaðurinn  Ingimundur Sigurpálsson, fulltrúi Sjálfstæðisflokksins, fær tvöfalda þá upphæð en Ingimundur hefur verið formaður stjórnarinnar síðan 2014. Eftir hækkunina mun hann fá nærri 4,7 milljónir á ári fyrir formannsembættið. Ingimundur er einnig forstjóri Íslandspósts sem jafnframt er í eigu hins opinbera. Mánaðargreiðsla vegna Isvaia eru 390 þúsund krónur á mánuði 

Næst hæstu stjórnarlaunin frá Isavia fær Matthías Imsland, fulltrúi Framsóknarflokksins, því hann situr bæði í stjórn Isavia og Fríhafnarinnar, sem er dótturfélag þess fyrrnefnda. Mánaðargreiðslur til Matthíasar munu nema 315 þúsund krónum eða sem samsvarar nærri  3,8 milljónum á ári. Ragnheiður Elín Árnadóttir, fyrrum ráðherra Sjálfstæðisflokksins og núverandi formaður stjórnar Fríhafnarinnar, fær 240 þúsund kr. á mánuði eða um 2,9 milljónir á ári fyrir formennskuna hjá Fríhöfninni. 

Turisti tekur dæmi um laun í Finlandi fyrir samskonar stjórnarsetu. Stjórnarformaður Finavia sem er í eigu ríkisins og rekur flugvellina í landinu, fær 205 þúsund á mánuði og 60 þúsund að auki fyrir hvern fund sem hann situr. Mæting stjórnarmanna á fundi er allt birt í ársskýrslu Finavia en hér eru sams konar upplýsingar ekki birtar.