Ílandsstofa er stór hálfopinber stofnun sem var sett á laggirnar í til að annast „markaðs- og kynningarstarf í þágu íslenskra útflutningsgreina“, eins og það er orðað. Þetta er svokallaður „samráðsvettvangur“ – þar sem koma saman stjórnvöld og svo aðilar úr atvinnulífinu.
Maður heyrir oft gagnrýnisraddir í garð Íslandsstofu – að þetta sé í raun óþarfa milliliður, geri ekki ýkja mikið gagn. Látum það liggja milli hluta. En það eru býsna margir starfsmenn hjá Íslandsstofu, þetta er orðið talsvert bákn.
Í gær steig fram stjórnarformaður Íslandsstofu – sem eins og áður segir á að starfa „í þágu íslenskra útflutningsgreina“. Því er líkast að hann hafi alveg gleymt sér, því hann hraunaði yfir WOW flugfélagið. Talaði eins og það sé hneyksli að það hafi fengið að starfa svo lengi.
Nánar á