Stjórnarflokkarnir stefna í einangrun

Miðað við nýjustu skoðanakannanir og orð forystufólks í stjórnmálum stefnir í að núverandi stjórnarflokkar, Framsóknarflokkur og Sjálfstæðisflokkur, verði í stjórnarandstöðu. Enginn hinna flokkanna hefur svo mikið sem orðað að vinna með þeim flokkum að loknum kosningum.

Þegar nýjustu skoðanakannanir eru reiknaðar saman og meðalfylgi hvers flokks er reiknað er staðan í íslenskum stjórnmálum þessi:

 

 365GallupMBLMMRMeðaltalÞingmenn
       
A-listi Björt framtíð7,47,77,78,27,85
B-listi Framsóknarflokkur8,59,88,69,29,06
C-listi Viðreisn6,612,411,410,210,18
D-listi Sjálfstæðisflokkur23,722,621,521,422,315
P-listi Píratar20,818,317,519,419,013
S-listi Samfylking6,57,16,99,07,45
V-listi Vinstri græn19,214,517,714,516,511

Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands vann könnun Morgunblaðsins.

Framsóknarflokkur stefnir að óbreyttu í að tapa þrettán þingmönnum, fær samkvæmnt þessu sex þingmenn, en er með nítján. Við kosningarnar 2013 tapaði Samfylkingin ellefu þingmenn. Framsókn mun að óbreyttu bæta það vafasama met. Að auki er flokkurinn í verulegum vanda vegna innanflokksátaka, átaka sem eru fara fram fyrir allra augum. Framsókn getur ekki talist spennandi kostur til stjórnarsamstarfs.

Enginn talsmaður annarra flokka hefur sagst vilja vinna með Sjálfstæðisflokki að loknum kosningum. Við flokknum blasir minna kjörfylgi en nokkru sinni. Mikið þarf að breytast til að Sjálfstæðisflokki verði boðið að ríkisstjórnarborði að loknum kosningum.

Flest bendir til að næsta ríkisstjórn verði fjögurra flokka, jafnvel fimm flokka. Núverandi stjórnarflokkar eru líklegastir til að verma bekki stjórnarandstöðunnar. 

-sme