Stjórnarflokkarnir skulda 660 milljónir

Samkvæmt nýjustu árs­reikn­ingum skuldar Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn skuld­aði rúmar 250 millj­ónir í árs­lok 2014 og átti eignir upp á tæplega 200 millj­ónir. Eigið fé Sjálfstæðisflokksins er líka mikið til bundið í eignum. Flokkurinn skuldaði samkvæmt ársreikningi 2014 tæpar 410 millj­ónir króna en eignirnar verðmetnar á tæpar 770 millj­ón­ir. 

Sunna Valgerðardóttir, blaðamaður á Kjarnanum fór yfir úttekt sína í viðtali á Hringbraut en Kjarninn hefur birt upplýsingar um fjárhag stjórnmálaflokkanna sem eiga fulltrúa á þingi, auk Viðreisnar. Óðum stytt­ist í kosn­ing­ar, ári fyrr en áætlað var. Þó að engin dag­setn­ing sé komin enn, þá búast flestir við því að kosið verið til Alþingis í októ­ber eða nóvem­ber. Ekki feng­ust svör um fjárhaginn frá Sam­fylk­ingu eða Fram­sókn­ar­flokki og Sjálf­stæð­is­flokkur og Björt fram­tíð vildu ekki gefa upp nákvæma fjárhagsstöðu. Nýjustu ársreikningar eru frá 2014 og miðað við þá eru skuldir sumra flokkanna verulegar.

Sunna segir að flestir flokkar hafi ætl­að að nýta árið 2016 til þess að greiða niður skuldir og safna pen­ing fyrir kosn­inga­bar­átt­una 2017. Næsta víst er því að kosningar fyrr, nú í haust muni verða flokkunum dýrkeypt eða þeim sem skulda mest.

Píratar vel stæðir

Píratar eru þó vel stæðir, eiga rúmar 17 millj­ónir króna og skulda ekk­ert. Í árs­reikn­ingi 2014 kemur fram að Sjálfstæðisflokkurinn skuldi tæpar 410 millj­ónir króna, eignir nema hins vegar tæpum 770 millj­ón­um. 

Úr herbúðum Vinstri grænna fást þær upplýsingar að árið 2013 hafi verið meira en 40 millj­óna króna halli, en ári síðar 2014 hafi orðið afgangur upp á 18 milljónir. Flokk­ur­inn skuldar þó rúmar þrjár millj­ónir vegna fasteignar á Akureyri .

Sam­kvæmt Val­gerði Páls­dótt­ur, fram­kvæmda­stjóra Bjartrar fram­tíð­ar er flokkurinn skuld­laus en til standi að leigja húsnæði í sumar. Sunna segir að nánari upplýsingar fáist ekki frá flokknum. Í árs­reikn­ingi frá 2014, sést þó að Björt framtíð skuldaði þá rúmar 5 milljónir króna.

Mikið fé bundið í eignum

Samkvæmt árs­reikn­ingum frá 2014 átti Sam­fylk­ingin um 166 millj­ónir í árs­lok 2014 og skuld­aði rúmlega 120 millj­ónir.  Eigið fé var 44 millj­ón­ir. Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn skuld­aði rúmar 250 millj­ónir í árs­lok 2014 og átti tæpar 200 millj­ónir í eign­um. Eigið fé var nei­kvætt um tæpar 60 millj­ón­ir.