Stjórnarflokkarnir með alla formennina

Búið er að skipa formenn í allar fastanefndir Alþingis. Í morgun voru fjórir nefndarfundir þar sem þingmenn ríkisstjórnarflokkanna tóku sæti sem formenn. Stjórnarandstaðan hefur enga formennsku í nefndum.

Sjálfstæðisþingmennirnir Brynj­ar Ní­els­son, þingmaður Sjálf­stæðis­flokks, var í morgun kjör­inn formaður stjórn­skip­un­ar- og eft­ir­lits­nefnd­ar Alþing­is. Páll Magnús­son, verður  formaður at­vinnu­vega­nefnd­ar og Áslaug Arna Sig­ur­björns­var sömuleiðis í morgun kjör­in formaður alls­herj­ar- og mennta­mála­nefnd­arw.

Jóna Sól­veig El­ín­ar­dótt­ir, þingmaður Viðreisn­ar verður formaður ut­an­rík­is­mála­nefnd­ar Alþing­is.