Ríkisstjórnarflokkarnir sækja í sig veðrið samkvæmt nýustu skoðanakönnun 365. Þar sést einnig að sókn Bjartrar framtíðar hefur verið stöðvuð og flokkurinn er rétt ofan við lágmarkið, til að fá kjörna þingmenn. Til þess verður framboðið að fá fimm prósent en 365 mæla Bjarta framtíð aðeins með 5,1 prósent og Samfylkinguna með sex prósent. Hvorutveggja eru lökustu mælinga flokkanna um nokkurn tíma.
Sjálfstæðisflokkur mælist hjá 365 með rúm 25 prósent og Framsókn mælist með 11,2 prósent. Báðir flokkar hafa ekki mælst með svo mikið fylgi í öðrum skoðanakönnunum í nokkuð langan tíma.
Hér er samantekin niðurstaða nýjustu skoðanakannanna allra þeirra sem mæla fylgi við flokkanna:
| 365 | Gallup | MBL | MMR | Meðaltal | Þingmenn | |
| A-listi Björt framtíð | 5,1 | 7,7 | 6 | 8,2 | 6,7 | 5 |
| B-listi Framsóknarflokkur | 11,2 | 9,8 | 9,1 | 9,2 | 9,8 | 6 |
| C-listi Viðreisn | 10,8 | 12,4 | 8,8 | 10,2 | 10,6 | 8 |
| D-listi Sjálfstæðisflokkur | 25,1 | 22,6 | 21,1 | 21,4 | 22,2 | 15 |
| P-listi Píratar | 20,3 | 18,3 | 22,6 | 19,4 | 21,3 | 14 |
| S-listi Samfylking | 6 | 7,1 | 6,5 | 9 | 7,1 | 5 |
| V-listi Vinstri græn | 16,4 | 14,5 | 18,6 | 14,5 | 16 | 10 |
Hér er samantekin niðurstaða nýjustu skoðanakannanna allra þeirra sem mæla fylgi við flokkanna, að 365 undanskildu:
| Gallup | MBL | MMR | Meðaltal | Þingmenn | |
| A-listi Björt framtíð | 7,7 | 6 | 8,2 | 7,3 | 5 |
| B-listi Framsóknarflokkur | 9,8 | 9,1 | 9,2 | 9,4 | 6 |
| C-listi Viðreisn | 12,4 | 8,8 | 10,2 | 10,5 | 7 |
| D-listi Sjálfstæðisflokkur | 22,6 | 21,1 | 21,4 | 21,7 | 15 |
| P-listi Píratar | 18,3 | 22,6 | 19,4 | 20,1 | 14 |
| S-listi Samfylking | 7,1 | 6,5 | 9 | 7,5 | 5 |
| V-listi Vinstri græn | 14,5 | 18,6 | 14,5 | 15,9 | 11 |
Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands vinnur skoðanakannannir fyrir Morgunblaðið.
Hér er niðurstaða nýjustu skoðanakönnunnar 365:
| 365 | Þingmenn | |
| A-listi Björt framtíð | 5,1 | 5 |
| B-listi Framsóknarflokkur | 11,2 | 7 |
| C-listi Viðreisn | 10,8 | 7 |
| D-listi Sjálfstæðisflokkur | 25,1 | 16 |
| P-listi Píratar | 20,3 | 13 |
| S-listi Samfylking | 6 | 5 |
| V-listi Vinstri græn | 16,4 | 10 |