Stjórnarflokkarnir bæta við sig

Heldur vænkast hagur Strumpu ef stjórnvöld mega heita svo, en stuðningur við ríkisstjórnina mælist nú öllu hærri en verið hefur á undanliðnum mánuðum, en 36% landsmanna segjast nú styðja stjórnina.

Þetta kemur fram í nýjasta þjóðarpúlsi Gallup, en þar sést að fylgi stjórnvalda er heldur á uppleið eftir að hafa farið niður fyrir 30% sem eru meiri óvinsældir en ríkisstjórn vinstriflokkanna glímdi við um miðbik síðasta kjörtímabils.

Á sama tíma og fylgi Pírata dalar heldur, eða um tvö prósentustig, rís land stjórnarflokkanna semr bæta hvor um sig um tveim­ur pró­sentu­stig­um við fylgi sitt og mæl­ist Sjálf­stæðis­flokk­ur­inn með 24,5% fylgi og Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn með 11,3% fylgi.  Pírat­ar tapa sem fyrr seg­ir tveim­ur pró­sentu­stig­um og mæl­ast nú með 31,8%. Það er áfram mesta fylgi nokk­urs flokks.

Sam­fylk­ing­in og Björt framtíð tapa hvor um sig um pró­sentu­stigi, en Sam­fylk­ing­in mæl­ist með 11,4% og Björt framtíð með 6,4%. Vinstri hreyf­ing­in grænt fram­boð mæl­ist með 10,3% fylgi. Fylgi annarra flokka breyt­ist lítið.

Rúm­lega 11% taka ekki af­stöðu eða neita að gefa hana upp og rúm­lega 10% segj­ast myndu skila auðu eða ekki kjósa ef kosið yrði til Alþing­is í dag