Stjórnarandstaðan krefst þingrofs

Stjórnarandstaðan hefur lokið fundum og hefur náð saman um aðgerðir vegna stöðunnar sem komin sé upp vegna meintra hneykslismála í ríkisstjórninni og þá einkum Tortóla-máls forsætisráðherra. Farið verður fram á þingrof að líkindum snemma í næstu viku. Einhver hluti þingmanna vildi samkvæmt heimildum Hringbrautar láta duga að bera upp vantraust á forsætisráðherra, Sigmund Davíð.

Ríkisútvarpið hefur eftir formanni Samfylkingar, Árna Páli Árnasyni, að mikilvægt sé að funda án tafar í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd með Umboðsmanni Alþingis ef ske kynni að hann vilji hefja sjálfstæða rannsókn. Þjóðin hafi verið leynd mikilvægum upplýsingum fyrir síðustu kosningar og farið verði fram á þingrof næsta mánudag. Engan tíma megi missa. Sigmundur Davíð verði að gefa þingmönnum færi á skýrum svörum við áleitnum spurningum. Traustið milli hans og almennings sé þrotið.

Uppfært kl. 18.37: Í kvöldfréttum Stöðvar 2 sagði Katrín Jakobsdóttir, formaður VG, að komin væri upp stóralvarleg staða. Ísland berjist gegn skattaskjólum en svo komi í ljós að helstu pólitísku ráðamenn eigi félög og eignir í skattaskjólum. Þess vegna sé rétt að rjúfa þing og blása til kosninga.