Stjórnarandstaðan ekki trúverðug

Þorsteinn Pálsson, fyrrverandi forsætisráðherra gefur sameiginlegum fjárlagatillögum stjórnarandstöðuflokkanna fáar stjörnur; samstaða þeirra um þessar tillögur sé vissulega vísbending um að þeir geti unnið saman, en efni tillagnanna geti hvorki talist ábyrgt né raunhæft.

\"Ríkisstjórnin er helst í vörn með þrjú málefni í fjárlögunum. Á útgjaldahliðinni er Landspítalinn erfiðasta dæmið. Utan frá séð er engu líkara en fjárlaganefnd hafi tekið stefnumótun á því sviði úr höndum ráðherra.  Síðan eru það bætur til aldraðra og öryrkja. Á tekjuhliðinni er það svo tryggingagjaldið,\" bendir Þorsteinn á og segir athygli vekja að stjórnarandstaðan taki á báðum útgjaldamálunum en hreyfi ekki við tryggingagjaldinu. Það séu aftur á móti tillögur hennar um tekjuöflun sem standist ekki skoðun.

\"Áætlaður tekjuauki af innheimtu undanskota á skatti er ekki studdur neins konar aðgerðaáætlun og er í raun algjörlega marklaus. Tímabundinn sérstakur orkuskattur er svo ekki sjálfbær fjármögnun eins og gera verður kröfu til þegar stofnað er til langtíma útgjalda,\" skrifar Þorsteinn og bætir við, talandi um tekjuöflun að ugglaust megi herða innheimtu auðlindaskatts í sjávarútvegi, en það sé gild mótrök að hætt sé við að hann myndi ganga nærri minni og meðalstórum útgerðum.

\"Loks gerir stjórnarandstaðan ráð fyrir því að taka meiri arð út úr Landsbankanum en ríkisstjórnin áformar,\" og hér er Þorsteinn hissa: \"Hún hefur hins vegar hvorki sýnt fram á að það sé gerlegt án þess að raska samkeppnisstöðu bankans né heldur að um sé að ræða sjálfbæra fjármögnun til lengri tíma.\"

Þetta eru skilaboðs hans til andstöðunnar: \"Satt best að segja á ég erfitt með að trúa því að flokkarnir myndu leggja þessar tillögur fyrir þingið ef þeir sætu uppi með ábyrgðina, nema ef til vill hluta af auðlindagjaldinu. Slíkar tillögur eru ekki trúverðugar,\" skrifar einn reynslumesti og virtasti stjórnmálamaður þjóðarinnar - og klikkir út með þessu: \"Í þessu ljósi þurfa núverandi stjórnarandstöðuflokkar að gera annað og meira en bera þessar fjárlagatillögur fram vilji þeir  búa til trúverðuga ímynd um annan ríkisstjórnarkost.\"