Stjórn rúv treysti ekki eigin fréttum

Magnús Geir Þórðar­son, út­varps­stjóri, seg­ir í Morgunblaðinu í gær að RÚV hafi staðið frammi fyr­ir erfiðum val­kost­um þegar ákveðið var að fara að ráðum lög­fræðinga fé­lags­ins og greiða Guðmundi Spar­tak­usi Ómars­syni 2,5 millj­ón­ir í máls­kostnað og bæt­ur út af frétta­flutn­ingi RÚV vegna til­tek­inna um­mæla í frétt­um af mál­um hans í upp­hafi árs 2016.

Fram hef­ur komið að sam­kvæmt sam­komu­lag­inu viður­kenn­ir RÚV ekki sekt í mál­inu. Frétt­irn­ar vörðuðu meinta aðild Guðmund­ar að fíkni­efna­máli. Spurður hvers vegna RÚV samdi við Guðmund rifjar út­varps­stjóri upp sögu máls­ins: \"Á sín­um tíma höfðu verið flutt­ar nokkr­ar frétt­ir á ár­inu 2016 af þessu máli í RÚV og reynd­ar öðrum miðlum. Þær byggðust að miklu leyti á um­fjöll­un er­lendra fjöl­miðla en einnig er­lend­um heim­ild­ar­manni. Síðar stefn­ir Guðmund­ur RÚV og fleir­um vegna þessa. Megnið af því sem fram kom í frétt­um um málið byggðist á heim­ild­um sem höfðu birst op­in­ber­lega en þegar til átti að taka kem­ur í ljós að heim­ild­armaður RÚV er ekki til­bú­inn til að staðfesta um­mæli sín með form­leg­um hætti, sem sneru að nokkr­um til­tekn­um atriðum í þess­um frétt­um.“

Magnús Geir rifjar upp að á sama tíma hafi eldra mál frá ár­inu 2012 farið fyr­ir Mann­rétt­inda­dóm­stól Evr­ópu sem hnykkti á sönn­un­ar­byrði og dóma­fram­kvæmd. Þar komu Svavar Hall­dórs­son, fréttamaður RÚV, og Jón Ásgeir Jó­hann­es­son at­hafnamaður við sögu.

Sem kunnugt er var Sigmundur Ernir Rúnarsson, ritstjóri Hringbrautar sýknaður í Hæstarétti í meiðyrðamáli sem Guðmundur Spartakur höfðaði á hendur honum fyrir sama fréttaflutning, en samkvæmt heimildum eer mikil reiði innan fréttastofu RÚV út í yfirmenn stofnunarinnar fyrir að hafa ekki staðið á frétt hennar og farið með málið alla leið fyrir dómstólum, rétt eins og sjónvarpsstöðin Hringbraut gerði.