Stjórn primera air: „mikil vonbrigði“

Stjórn Pri­mera Air segir í yfir­lýs­ingu á vef félags­ins, að marg­vís­legir ófyr­ir­séðir atburðir hafi leitt til þess að félagið er nú í leið í gjald­þrot. Í yfir­lýs­ing­unni segir að nið­ur­staðan - eftir mikla vinnu starfs­fólks við að reyna að rétta af rekst­ur­inn og styrkja fjár­hag­inn - sé „mikil von­brigð­i“.

Félag­inu tókst ekki að ljúka brú­ar­fjár­mögn­un, upp á um 40 millj­ónir evra, eða sem nemur um 5,5 millj­örðum króna, með við­skipta­banka sínum og því var ekk­ert annað í stöð­unni en að óska eftir gjald­þrota­skipt­um.

 

Andri Már Ing­ólfs­son er for­stjóri og aðal­eig­andi félags­ins, en það hefur vaxið hröðum skrefum und­an­farin ár, en var upp­haf­lega stofnað 2003.

Nánar á

https://kjarninn.is/frettir/2018-10-01-stjorn-primera-air-mikil-vonbrigdi/