Af þeim 118 frumvörpum sem ríkisstjórnin hefur lagt fram á yfirstandandi þingi hafa 42 stjórnarfrumvörp verið samþykkt en 76 þeirra eru enn óafgreidd, þar af eru 68 þeirra ýmist enn í nefnd eða bíða annarrar umræðu.
Þingfundir stóðu fram yfir miðnætti síðastliðna nótt og fór mikill tími í að ræða fundarstjórn forseta eins og einkennt hefur þingið um margra daga skeið. Gærdagurinn var um margt einkennandi fyrir það upplausnarástand sem nú ríkir á löggjafarsamkundu þjóðarinnar; samkvæmt dagskrá áttu þingstörf í gær að hefjast klukkan 10.00 á umræðum um störf þingsins og eftir það var boðuð sérstök umræða um húsnæðismál, en svo fór að fyrsti dagskráliðurinn hófst hins vegar ekki fyrr en leið á fjórða tímann í eftirmiðdaginn.
Reyndir þingmenn segjast vart muna aðra eins hörku og einkennt hefur samskipti stjórnarliða og stjórnarandstöðu á yfirstandandi þingi sem þeir segja að megi að einhverju leyti rekja til lítillar samningslipurðar milli oddvita ríkisstjórnarinnar og minnihlutaflokkanna á þingi. Hefðin hafi jafnan verið sú að þessir aðilar hafi getað sest niður og rætt málin af þokkalegri yfirvegun, en þessum samtölum sé ekki lengur til að dreifa; hvor aðilinn vænir hinn um hroka og yfirgang, ellegar stífni og niðurrif. Fyrir vikið haldi meenn sig í skotgröfunum.
Þar af leiðandi hefur þingstarfið síðustu vikur verið nánast lamað - og vart hægt að tala um nokkur afköst þar eða framleiðni svo gripið sé til orða úti á hinum almenna vinnumarkaði, sem vel að merkja, er líka að lamast.