Borgun harmar dylgjur steinþórs

Stjórn Borgunar gerir alvarlegar athugasemdir við framgöngu Steinþórs Pálssonar, bankastjóra Landsbankans í Borgunarmálinu og segir hann ítrekað hafa farið fram með dylgjur og beinar ásakanir um óheiðarleika stjórnenda Borgunar.

Steinþór var síðast í viðtali í Kastljósi Ríkissjónvarpsins í gærkvöld þar sem hann ítrekaði að Landsbankamenn hefðu ekki haft hygmynd um það mikla verðgildi sem Borgun hefði í raun áður en gengið var frá sölu á rösklega 30% hlut bankans í fyrirtækinu að andvirði 2,2, milljarðar króna, hlutar sem nú er talinn margfalt verðmætari. Af máli hans í viðtölum undanfarna daga, þar á meðal í Kastljósi, hefur mátt ráða að forkólfar Borgunar hafi leynt Landsbankamenn upplýsingum um raunvirði hlutarins - og hann áskili sér rétt til að kæra viðskiptagjörninginn í ljósi þess sem síðar hefur verið upplýst.

Stjórnendur Borgunar sendu frá sér tilkynningu þegar að afloknum þættinum í gærkvöld og segjast frábiðja sér að vera gerðir að blórabögglum í málinu.

Yfirlýsing Borgunar er svona í heild sinni: 

 

Stjórn Borgunar gerir alvarlegar athugasemir við framgöngu Steinþórs Pálssonar bankastjóra Landsbankans í fjölmiðlum.  Steinþór fer ítrekað fram með dylgjur og óbeinar ásakanir um óheiðarleika og illan ásetning stjórnenda Borgunar sem standast enga nánari skoðun. Þetta eru staðreyndir málsins: 

 1. Stjórnendur og aðrir starfsmenn Borgunar keyptu 6,24% hlut í félaginu af Landsbankanum. Tveimur mánuðum áður en tilkynnt var um sölu Visa Europe og hagnað Borgunar, seldu þessir sömu stjórnendur Borgunar rúman helming af þeim hlut, án nokkurs fyrirvara um sölu Visa Europe. Allt tal um blekkingar verður algerlega fráleitt í þessu ljósi.

 2. Steinþór Pálsson er orðinn margsaga um hvort og hvernig Landsbankinn kynnti sér mögulegan valrétt Visa Inc. Eins hvers vegna bankinn gerði fyrirvara í viðskiptum með eign sína í Valitor en ekki í Borgun. Staðreyndin er sú að Landsbankinn hafði mun betri aðgang að upplýsingum um þennan valrétt en Borgun. Það er ótrúlegt að Landsbankinn, eftir að hafa að eigin sögn kynnt sér gögn um valréttinn vel,  hafi samt komist að þeirri niðurstöðu að Borgun, einn allra leyfishafa,  hefði ekki rétt til greiðslna, kæmi til sölu Visa Europe.

 3. Við sölu á hlut Landsbankans í Borgun árið 2014 höfðu fulltrúar Landsbankans  aðgang að öllum upplýsingum sem máli skiptu, (þar með talið samningum við VISA),að undanskilum upplýsingum um samkeppnisaðila sína. Landsbankanum var í lófa lagt að fá ytri sérfræðinga til þess að yfirfara hverjar þær upplýsingar sem hann vildi um málefni Borgunar, hefði hann kosið að gera slíkt.

4. Alvarlegar ásakanir bankastjórans um meint lögbrot annarra í þessu máli má sjálfsagt skoða í ljósi þeirrar erfiðu stöðu sem Landsbankinn er kominn í. Stjórnendur Borgunar frábiðja sér með öllu að vera gerðir að blórabögglum í þessu máli.