Hrólfur Ölvisson, framkvæmdastjóri Framsóknarflokksins, tengdist tveimur félögum sem skráð voru á Tortóla.
Frá þessu geinir Eyjan í nýrri frétt.
Markmið annars félagsins var að „skýla eignartengslum og íslenskum nýjungum í samkeppni við sambærileg fyrirtæki í Evrópu“, en hitt fyrirtækið hélt utan um einkaleyfi varðandi vátryggingar eftir því sem Eyjan greinir frá og Hrólfur staðfestir í samtali við vefmiðilinn.
Fram kemur að annað félagið hafi haft tengsl við VÍS. Að öðru leyti segist Hrólfur lítið vita um félagið, þar eð hann hafi ekki komið ekki komið að stofnun eða umsýslu félagsins. Aðkoma hans að félaginu hafi enn fremur ekki verið nauðsynleg eftir að VÍS hafði tekið félagið yfir.
Finnur Ingólfsson, fyrrum ráðherra Framsóknarflokksins og náinn samstarfsmaður Hrólfs Ölvissonar var um tíma forstjóri VÍS.