Stingandi skjannabirta á himni

Veður hefur verið still og gott víðast hvar um landið í morgun og þunn skýjaslæða á lofti sem vart eða ekki hindrað áhugasömu fólki að skoða sólmyrkvann á þessum merkilega degi í augum margra náttúruuunnenda. Fjöldi fólks var samankominn  á opnum svæðum í miðborg Reykjavíkur í morgun, þar á meðal við Hörpuna og Sólfarið, en dreifð af maríutásum var á himni yfir suðvestanverðu landinu í morgun.


Heyra mátti og gnýinn af einkaþotum sem voru að taka sig á loft frá Reykjavíkurflugvelli á níunda tímanum í morgun, enda ætla sér maregir að njóta sólmyrkvans eins og aðstæður gerast bestar til þess. 


Sólmyrkvinn verður 99,5% við austanvert landið, en prósentustigi minni yfir Reykjavík og nágrenni. 


Myndin hér að ofan er tekin í efri byggðum Kópavogs í morgun og sýnir vel styrk sólarinnar í aðdraganda myrkvans.