Stjórnendur vefmiðlanna sem mættu í umræðuþáttinn Ritstjórana á sjónvarpsstöðinni Hringbraut í gærkvöld voru sammála um að Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands væri einkar laginn við að koma sér í hóp umdeildra manna, forstjóra jafnt sem þjóðarleiðtoga.
Tilefni umræðunnar var umtöluð fjarvera forsetans á kosningaafmæli fyrirrennara hans, Vigdísar Finnbogadóttur sem haldið var að frumkvæði Alþingis á Arnarhóli á sunnudagskvöld, en daginn eftir voru rétt 35 ár liðin frá sögulegu kjöri hennar sem vakti heimsathygli, enda Vigdís fyrsta konan í heiminum sem kjörin var af þjóð sinni til þessara æðstu metorða.
Ritstjórarnir Magnús Geir Eyjólfsson af Eyjunni, Jón Trausti Reynisson af Stundinni og Þórunn Elísabet Bogadóttir frá Kjarnanum luku upp einum rómi um það að það hefði í sjálfu sér ekki verið frétt að Ólafur Ragnar hefði ekki látið sjá sig á afmælinu á sunnudagskvöld heldur hafi það sætt meiri tíðindum hvar hann hélt sig á sama tíma, nefnilega í kvöldverði með forkólfum Goldmans Sachs, einhverju umdeildasta fjármálafyrirtæki heims sem margfrægt sé fyrir að troða á mannréttindum fólks í þróunarríkjum.
\"Þetta er hans stíll,\" sagði Magnús Geir í þættinum. \"Það er eins og hann kunni best við sig innan um svona vafasaman félagsskap,\" bætti hann við og nefndi samneyti hans við einræðisstjórnirnar í Kína og Rússlandi og nýlegan samfund hans með forseta Sri Lanka í Abu Dhabi, en þar hefði forseti íslands mært árangur þess manns í embætti, sama manns og væri í meira lagi umdeildur fyrir að níðast á þjóðfélagshópum heima fyrir, jafnvel sakaður um stríðsglæpi,\" sagði Magnús Geir. \"Honum finnst ekkert leiðinlegt að umgangast svona fólk,\" benti Jón Trausti á og undir það tók Þórunn Elísabet.
Magnús Geir taldi að Ólafi Ragnari hefði aldrei liðið vel í skugganum af arfleifð Vigdísar, hann kynni altént ekki vel við hana; hann hefði kosið að fara aðrar leiðir en hún; vera meira á meðal valdafólksins en minna með almenningi.
Þáttinn Ritstjórana má sjá í heild sinni á hringbraut.is eða í klippum á sama stað.