Stíf fundarhöld og von um sátt

Fundur verkalýðsfélaganna VR, Eflingar, VLFA, VLFG, LÍV og Framsýnar og Samtaka atvinnulífsins í húsakynnum ríkissáttasemjara hófst nú í morgun. Stíft hefur verið fundað síðustu daga og áætlar Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, að það sama verði uppi á teningnum í dag, fram eftir kvöldi og alla helgina, ef vel gengur. Nýjan tón kveður við í viðræðunum að mati forsvarsmanna verkalýðsfélaganna og SA og vonast er til að sátt náist.

RÚV.is og Mbl.is eru meðal þeirra sem greina frá.

Gjaldþrot WOW air setur aukinn þrýsting á aðilana að ná sáttum og segir Ragnar Þór að í gær hafi verið settur saman langur verkefnalisti fyrir fundinn í dag. „Það skynja allir þá miklu ábyrgð sem á okkur hvílir, sérstaklega eftir atburði síðustu daga. Það hefur kannski svona myndað meiri pressu á að klára þetta en engu að síður það hefur ekkert áhrif á okkar kröfur í sjálfu sér og okkar væntingar til kjarasamninganna annað en það að við þurfum bara að skerpa á þeim ef eitthvað er, en hitt er annað mál að ég tel að mér finnst svona stemmningin vera sú já, hjá öllum þeim sem koma að þessum samningum sé sú að gera mjög alvarlega og harða atlögu að því að klára þetta,“ segir Ragnar Þór í samtali við RÚV.

Auk fund­ar verka­lýðsfé­lag­anna sex og SA fund­ar Starfsgreinasam­bandið einnig með atvinnurek­end­um, og hófst sá fund­ur klukkan 9:30 í morg­un.