Steypuskrímsli eyðileggja borgarstílinn

Sá vel yddaði penni sem Jónas Kristjæánsson er húðskammar skipulagsyfirvöld í nýjasta pistli sínum á jonas.is og segir þá vera komna langleiðina með að eyðileggja svip höfuðborgarinnar við Sundin blá.

\"Í gamla daga kunni borgin skipulag,\" skrifar gamli refurinn og minnir á rýmisvitund fyrri tíma: \"Ægisgata stefnir á Kristkirkju og Suðurgata stefnir á Keili.\" En nú sé hún stekkur, blessuð Snorrabúðin: \"Skipulagsþekkingin glataðist og nú eyðileggur íbúðaturn vista niður Frakkastíg,\" skrifar Jónas og man tímana tvenna: \"Áður var stíll yfir Reykjavík. Nú er hann brotinn á bak aftur með háum turnum og steypuskrímslum út í lóðamörk.\"

Hann segir gamla bæinn leika á reiðiskjálfi í sprengingum fyrir tveggja gólfa kjallara: \"Á Bráðræðisholti hristast gömlu húsin í sundur. Ekki er tekið tillit til fólks. Barizt er um gömlu bílastæðin, því að nýbyggingar ofan í grónum hverfum gera ekki ráð fyrir nýjum bílum,\" skrifar hann af sínum gamalkunna þrótti.

Og botnar skrifin svona: \"Ofstæki hins bíllausa lífsstíls er harður húsbóndi.\"