Stevia hjálpar til við þyngdartap

Mikil vitundarvakning hefur orðið á Íslandi undanfarin ár um mikla sykurnotkun Íslendinga og magn sykurs í mat. Fjölmargir hafa leitað á önnur mið og nota ýmis sætuefni í stað sykurs við matargerð. Aragrúi af mismunandi sætuefnum er í boði og því getur verið erfitt að átta sig á hvað ætti að velja og hvað ekki. 

Stevia er ein tegund sætuefnis sem hefur reynst mörgum vel. Á heimasíðunni Lifðu til fulls er fjallað um hina góðu kosti Steviu, en þar segir meðal annars að Stevia sé eitt besta sætuefni sem völ er á hér á landi. 

Stevia er 100% náttúruleg græn laufguð planta sem notuð hefur verið til lækninga um aldir. Stevia getur verið allt að 200-350 sinnum sætari en hvítur sykur en á sama tíma er það eitt besta sætuefnið til að láta kílóin fjúka og ýta undir heilsusamlegan lífstíl. Ýmsar ástæður má finna fyrir því:

  • Í fyrsta lagi safnast Stevia ekki upp sem fita í líkamanum. Stevia er low glycemic og því hækkar blóðsykur ekki við neyslu. Rannsóknir hafa bent til þess að sætuefnið bæti virkni insúlíns og hjálpi til við lækkun blóðsykurs. 
  • Í öðru lagi getur Stevia hjálpað til við að viðhalda heilbrigðri matarlist og er þekkt fyrir að stilla matarlöngunum í hóf. Sykur hins vegar, kemur í veg fyrir að heilinn gefi líkamanum boð um að einstaklingur sé saddur. 
  • Í þriðja lagi er Stevia hitaeiningarlaust. Sætuefnið er þó 200-250 sinnum sætari en sykur og því þarf mjög lítið í einu þrátt fyrir hitaeiningaleysið. 
  • Í fjórða lagi getur Stevia lækkað blóðsykurstig líkamans og unnið gegn sykursýki 2. 
  • Í fimmta lagi aðstoðar Stevia líkamann við að draga úr Candida sveppnum, sem er til staðar hjá öllum einstaklingum. Sveppurinn nærist af sykri og getur orsakað síþreytu og veikt ónæmiskerfið. Stevia dregur fram sæta bragðið, án þess að næra sveppinn í leiðinni.